Hvernig panta ég ?
Til að panta vöru fyllir þú út pöntunarformið á síðunni og tekur fram hvaða vörur og fjölda sem þú óskar eftir að kaupa.
Þegar pöntun hefur verið send færð þú staðfestingarpóst frá okkur innan 24 klukkustunda með nánari greiðsluupplýsingum.
Mikil áhersla er lögð á persónulega þjónustu hjá okkur og stór hluti pantana eru sérpantanir. Því fara allar pantanir fram í gegnum pöntunarformið, sem gerir okkur kleift að veita betri eftirfylgni, ráðgjöf og persónulegri þjónustu við hvern viðskiptavin.
Afhending pantana
Vörur eru almennt afhendar innan við viku frá því að greiðsla hefur verið framkvæmd. Ef um sérpantanir eru að ræða getur verið lengri bið tími.
Við bjóðum upp á tvo afhendingarmöguleika:
*Sækja í verslun HNgallery, Faxafeni 10, Reykjavík. Ef þú velur að sækja vöruna í HNgallery færð þú tölvupóst um leið og pöntunin er tilbúin til afhendingar. Verslunin sér um að afhenda pantanir fyrir okkur.
*Fá vöruna senda
Einnig er hægt að fá vöruna senda heim, á pósthús eða í póstbox gegn gjaldi.
-
Frí sending þegar verslað er fyrir 12.000 kr. eða meira.
Höfundaréttur og notkun efnis
Allar vörur, myndir og hönnun sem birtist á þessari vefsíðu eru varin samkvæmt lögum um höfundarétt. Óheimilt er að afrita, breyta, fjölfalda, selja, eða nýta efnið á annan hátt, án samþykkis höfunda. Þetta gildir einnig um rafræn skjöl, skissur og annað stafrænt efni á samfélagsmiðlum sem tengist vörum eða hönnun fyrirtækisins.
Hafðu samband
Hafðu samband á watercolorbyruth@gmail.com
ef þú hefur einhverjar spurningar eða vilt gerast endursöluaðili á vörum frá okkur.