top of page

By Ruth

​

Ruth A. Ingólfsdóttir er hönnuðurinn á bakvið Watercolor by Ruth.

Hún er þriggja barna móðir, menntaður kennari og iðnmeistari í hársnyrtiiðn.

Ruth starfar sem kennari ásamt því að skapa og hanna vörur undir merkinu

Watercolor by Ruth. 

​

Frá unga aldri hefur Ruth haft  áhuga á listum og sköpun og hefur sótt fjölda námskeiða í myndlist í gegnum árin. Sú reynsla hefur skapað góðan grunn sem nýtist henni bæði í starfi og við vöruhönnun fyrir Watercolor by Ruth.

​

Watercolor by Ruth hófst sem lítið ævintýri árið 2020 og hefur vaxið jafnt og þétt síðan. Í dag fást vörurnar í verslunum víða um land.

Ruth leggur áherslu á persónulega og góða þjónustu. Innblástur verkanna kemur fyrst og fremst úr náttúrunni, sérstaklega blómum sem unnin eru með vatnslitum. 

waterprofiel_orig.jpg
2f672e23-6177-432f-87d8-676471ab181d.jpg

​

Hafðu samband á watercolorbyruth@gmail.com

ef þú hefur einhverjar spurningar eða vilt gerast endursöluaðili á vörum frá okkur.

​

Ath. Það er mismunandi úrval af vörum eftir verslunum. 

​

Mikil áhersla er lögð á persónulega þjónustu hjá okkur og stór hluti pantana eru sérpantanir.

Því fara allar pantanir fram í gegnum pöntunarformið, sem gerir okkur kleift að veita betri eftirfylgni, ráðgjöf og persónulegri þjónustu við hvern viðskiptavin.

bottom of page